156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

298. mál
[15:15]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsögu hennar. Mig langar að koma inn á ályktun frá Bátafélaginu Ægi í Stykkishólmi. Þar segir, með leyfi forseta:

„Bátafélagið Ægir telur að veiðistýring á grásleppu eigi að vera eins og í öðrum tegundum innan fiskveiðistjórnarkerfisins, þ.e. setja hann í aflamark og þar með hætta þeim ólympísku veiðum sem stundaðar eru í dag. […] Það er mat Bátafélagsins Ægis að veiðistýring með aflamarki sé eina leiðin til að tryggja stöðugleika, fyrirsjáanleika í afkomu við veiðarnar og eyða þeirri óvissu sem fylgt hefur veiðunum undanfarin ár. Án þessara breytinga vita sjómenn í raun ekki að hverju er gengið hverju sinni, ekki einu sinni við upphaf vertíðar. Nauðsynlegt sé að skapa greininni stöðugleika og nauðsynlegan fyrirsjáanleika sem eru grundvallarþættir í öllum rekstri. Veiðitímabil grásleppu er mismunandi eftir svæðum og hefst það seinni hluta mars fyrir Norðurlandi en ekki fyrr en 20. maí við innanverðan Breiðafjörð.“

Síðan segir:

„Vorið 2020 var búið að veiða leyfilegt magn í lok apríl.“

Við höfum byggt upp þetta fiskveiðistjórnarkerfi þar sem við erum með nytjastofna og nú grásleppu. Komið hafa fram sjónarmið frá grásleppuútgerðum um meiri fyrirsjáanleika í kerfinu. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Af hverju er farið í þessa vegferð yfirleitt þegar búið er að kvótasetja en síðan hætt við og það tekið aftur? Þetta er svolítið ruglingslegt.