veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegur forseti. Veiðistjórn á grásleppu hefur í um 70 ár verið með dagakerfi og ef eitthvað er ruglingslegt þá er það það að það hafi verið ákveðið, með miklum hraða á síðasta degi á síðastliðnu þingi, að koma þessu í kvóta; það var flutt af meiri hluta atvinnuveganefndar þá og ekki var mikið samráð og ekki fylgdi áhrifamat á sveitarfélögin. Það eru í raun engin líffræðileg rök fyrir því að það þurfi að kvótasetja grásleppu. Hún hefur verið innan ráðgjafar eiginlega allan þennan tíma og það hefur verið uppsafnað magn, eins og kom fram í ræðu minni, sem hefur ekki gengið á milli ára vegna þess að ekki hefur verið nein hefð fyrir því. En við vitum að ákveðnir aðilar vilja fá allt í kvóta til að geta selt sig út úr greininni eða braskað með þetta eða komið þessu á fárra hendur. Og nú er farið að tala um, og það kom fram að því var breytt í vinnu nefndarinnar milli umræðna á síðasta þingi, að það verði engin stærðarmörk á þessum bátum sem veiða grásleppu. Og hvað þýðir það í framkvæmd? Það þýðir að þetta fer meira og minna á stór skip en ekki á minni skip sem hafa verið við veiðar við strendur landsins. Þetta er bara hrein pólitík sem er þarna á ferðinni. Við sem viljum standa vörð um að ekki sé allur afli á Íslandsmiðum settur undir aflamark kvóta með framsali — í núverandi frumvarpi stefnir í að það verði sett á 1. ágúst 2026 og við viljum koma í veg fyrir það — viljum standa vörð um sjávarbyggðir landsins með því að menn geti aftur stundað þessar veiðar með stjórnun á dögum. Það er ekki eins og það hafi verið mikill fyrirsjáanleiki núna á þessari vertíð. Ekki vissu menn mikið hvað þeir máttu veiða. Það kemur ný ráðgjöf (Forseti hringir.) og menn voru stoppaðir af. Það var þetta kerfi sem gilti þá, það var enginn fyrirsjáanleiki.