156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

ákvarðanir nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn o.fl.

124. mál
[18:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta utanrmn. (Dagbjört Hákonardóttir) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 um breytingu á II. viðauka, sem fjallar um tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun, nr. 145/2024 um breytingu á IX. viðauka, um fjármálaþjónustu, og nr. 170/2024 um breytingu á IX. viðauka, líka um fjármálaþjónustu, og XII. viðauka, um frjálsa fjármagnsflutninga, við EES-samninginn.

Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi þrjár ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:

Í fyrsta lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 317/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á II. viðauka er varðar tæknilegar reglugerðir, staðla, prófanir og vottun, við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:

1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020 frá 20. júní 2019 um markaðseftirlit og samræmi vara við kröfur og um breytingu á tilskipun 2004/42/EB og reglugerðum (EB) nr. 765/2008 og (ESB) nr. 305/2011.

2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/1121 frá 8. júlí 2021 þar sem tilgreindar eru upplýsingar um tölfræðileg gögn, sem aðildarríkin eiga að leggja fram að því er varðar eftirlit með vörum sem koma inn á markað Sambandsins, með tilliti til öryggis og samræmi vara.

3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/1267 frá 20. júlí 2022 um að tilgreina verklagsreglur við tilnefningu prófunarstöðva Sambandsins vegna markaðseftirlits og sannprófunar á samræmi vöru við kröfur í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1020.

Í annan stað ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 145/2024 frá 12. júní 2024 um breytingu á IX. viðauka, er varðar fjármálaþjónustu, við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:

1. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2401 frá 12. desember 2017 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki.

2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/2402 frá 12. desember 2017 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun, og um breytingu á tilskipunum 2009/65/EB, 2009/138/EB og 2011/61/ESB og reglugerðum (EB) nr. 1060/2009 og (ESB) nr. 648/2012.

2. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/557 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2402 um almennan ramma fyrir verðbréfun og gerð sértæks ramma fyrir einfalda, gagnsæja og staðlaða verðbréfun til að aðstoða við endurbætur í kjölfar Covid-19 hættuástandsins.

3. Enn fremur reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/558 frá 31. mars 2021 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar aðlögun á rammanum um verðbréfun til að styðja við efnahagslegar endurbætur til að bregðast við Covid-19 hættuástandinu.

4. Einnig er verið að fella inn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1221 frá 1. júní 2018 um breytingu á framseldri reglugerð (ESB) 2015/35 að því er varðar útreikning á lögbundnum gjaldþolskröfum fyrir verðbréfanir og einfaldar, gagnsæjar og staðlaðar verðbréfanir í eigu vátrygginga- og endurtryggingafélaga.

Í þriðja lagi er um að ræða ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 170/2024 frá 5. júlí 2024 um breytingu á IX. viðauka, um fjármálaþjónustu, og XII. viðauka, frjálsir fjármagnsflutningar, við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1230 frá 14. júlí 2021 um greiðslur yfir landamæri í Sambandinu, um kerfisbindingu.

Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og kemur fram í nefndaráliti utanríkismálanefndar. Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti utanríkismálanefndar til að tillagan verði samþykkt. Undir álitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, Diljá Mist Einarsdóttir, Jóhann Friðrik Friðriksson, Sigmar Guðmundsson, Sigurður Helgi Pálmason, Víðir Reynisson og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.