156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

verðbréfun.

122. mál
[18:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Sigmar Guðmundsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Í álitinu kemur fram að nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Seðlabanka Íslands. Nefndinni barst að auki ein umsögn og minnisblað frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem er aðgengilegt undir málinu á vef Alþingis.

Með þessu frumvarpi er lagt til að sett verði ný heildarlög um verðbréfun og að breyting verði gerð á ýmsum lögum á sviði fjármálaþjónustu til samræmis. Í nefndarálitinu er rakin umfjöllun nefndarinnar ásamt breytingartillögu og það liggur frammi þingmönnum og öðrum til kynningar.