rekstraraðilar sérhæfðra sjóða og verðbréfasjóðir.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þessu máli fyrir hönd meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar eins og fram hefur komið. Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og það barst einnig eitt erindi frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu sem er aðgengilegt undir málinu á vef Alþingis.
Með þessu frumvarpi eru lagðar til breytingar á lögum um rekstraraðila sérhæfðra sjóða, nr. 45/2020, og lögum um verðbréfasjóði, nr. 116/2021. Markmið frumvarpsins er að kveða skýrt á um lagastoð til innleiðingar á Evrópugerðum með stjórnvaldsfyrirmælum, jafnframt að framangreindir lagabálkar endurspegli verkaskiptingu sem viðhöfð hefur verið á milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Seðlabanka Íslands á síðustu árum við innleiðingu undirgerða frá stofnunum Evrópusambandsins. Frumvarpið varðar einkum lagatæknileg atriði sem kunna að greiða fyrir tímanlegri innleiðingu Evrópugerða sem teknar eru upp í EES-samninginn. Að öðru leyti eru áhrif þess óveruleg.
Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt og undir það rita Arna Lára Jónsdóttir, Ragna Sigurðardóttir, Marta Wieczorek, Sigmar Guðmundsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson.