fjarvera ráðherra á þingfundi.
Frú forseti. Það varðar fjarveru hæstv. fjármálaráðherra hér við umræðu síðastliðinn laugardag. Útskýringar hæstv. ráðherra verða æ undarlegri, svo vægt sé til orða tekið. Í dag bættist við frétt í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni, með leyfi forseta: „Myndi aldrei hafa minni hlutann að fífli“. Látum það nú liggja milli hluta, það er eitthvað sem hæstv. ráðherrar reyna að gera, svona í pólitískum leikjum. En mér þótti verri meðferð hæstv. forseta sem varð fyrir barðinu á þessari nálgun hæstv. ráðherra. Hér í viðtalinu segir hæstv. fjármálaráðherra, með leyfi:
„Umræðan styttist skyndilega og ég náði því ekki á fundinn áður en honum lauk. Ég hafði öðrum hnöppum að hneppa.“
Staðreyndin er sú að frá því að mælendaskrá tæmdist af stjórnarandstæðingum var farið í eina fimm mínútna ræðu sem hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar gerði og það var farið í andsvör sem stóðu samanlagt í níu mínútur. Það voru sem sagt 14 mínútur sem hæstv. ráðherra hafði til að labba þessa tveggja mínútna leið úr stóra sal í Smiðju hingað yfir. Það tekur tvær mínútur. Þessi umræða tók 14 mínútur áður en henni lauk og við vitum að það var búið að hringja í alla til að kalla menn til atkvæðagreiðslu.
Virðulegur forseti. Mig langar að forvitnast um það hvort einhver samtöl hafi átt sér stað milli hæstv. forseta og hæstv. ráðherra varðandi þetta því að ég man varla eftir svona eftiráskýringum eins og hér hafa komið fram frá hæstv. ráðherra.