156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

fjarvera ráðherra á þingfundi.

[15:04]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Já, því miður er það ekki bara fjarvera hæstv. ráðherra sem er fyrir neðan allar hellur að mínu viti, það eru ekki síður viðbrögð hæstv. ráðherra og hans svör sem hafa bæði komið fram hér í þingsal og hafa birst okkur í fjölmiðlum sem standast hreinlega enga skoðun, frú forseti, og mér þykir þetta alvarlegt. Það er alvarlegt að þingheimi sé sýnd svona vanvirðing. Ég fer þess á leit við hæstv. forseta að hún hlutist til um að það sé algerlega á hreinu hjá hæstv. ráðherrum Viðreisnar í þessu tilfelli að þeir sitja ekki í umboði grasrótar Viðreisnar. Þeir sitja í umboði þingsins og því ber að sýna virðingu.