156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Ríkisstjórn sem ætlar að forgangsraða. Fyrsta verk núverandi heilbrigðisráðherra er að leggja niður Janus endurhæfingu sem er þá einmitt væntanlega þeirra forgangsröðun í eflingu geðheilbrigðismála. Í morgun mætti heilbrigðisráðherra á fund velferðarnefndar en minni hlutinn óskaði fyrst eftir því að fá viðkomandi ráðherra á fund nefndarinnar 12. mars, fyrir tveimur mánuðum síðan. Það þurfti sex formlegar beiðnir, ýmist á fundum eða með tölvupóstum, til að ná þessu fram. En það var gott að fá hæstv. ráðherra á fund og þess ber að geta að hún var öll af vilja gerð. Þetta varðaði forgangsröðun formanns nefndarinnar. Eftir fundinn er ljóst að mörgum af mikilvægustu spurningunum hefur enn ekki verið svarað. Við stöndum frammi fyrir þeirri staðreynd að það er verið að skilja eftir einn viðkvæmasta hóp ungs fólks í landinu án raunverulegra úrræða. Sú ábyrgð liggur ekki hjá VIRK, hún liggur ekki hjá geðteymum, hún liggur hjá heilbrigðisráðherra. Ráðherra hefur enn tækifæri til að skipta um skoðun, rétt eins og síðasti heilbrigðisráðherra gerði þegar hann ákvað að framlengja starfsemi Janusar vegna þess að ekkert sambærilegt úrræði var til staðar, sem er nákvæmlega sama staða og er í dag. Það væri því ekki aðeins rétt heldur líka rökrétt og mannúðlegt að gera slíkt hið sama núna. Stjórnarliðar hafa talað fyrir því að setja geðheilbrigðismál í forgang og að engin meðferðarúrræði verði lokuð í sumar en það sem blasir við er að það á að loka þessu mikilvæga úrræði þvert á vilja sérfræðinga, endanlega og án þess að sambærileg þjónusta taki við. Þar fara orð og athafnir ekki saman, virðulegi forseti. Hljóð og mynd varðandi upplýsingar fara heldur ekki saman. Þetta snýst ekki um rekstrarform. Þetta snýst um að hjálpa einstaklingum í neyð. Þetta snýst um hvaða þjónustu við ætlum að veita. Þetta snýst um hvernig við ætlum að veita hana og þetta snýst um hverjum við ætlum að veita hana. (Forseti hringir.) Ábyrgðin er skýr, virðulegi forseti. Hún liggur hjá hæstv. heilbrigðisráðherra og því er áhugavert að sjá hvernig ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur forgangsraðar í geðheilbrigðismálum.