Störf þingsins.
Forseti. Undanfarin ár hefur aukning í fjölda þeirra sem hingað koma í leit að hæli margfaldast og flestir innviðir okkar komnir að þolmörkum. Á þessu ári hefur dregið aðeins úr fjöldi umsókna þó að þær séu mun fleiri en fyrir nokkrum árum og því tilvalið að endurmeta hvernig við stöndum best á málum til framtíðar. Hæstv. forsætisráðherra mætti í viðtal í morgun þar sem hún tiltók að hún vildi ræða Færeyjar en ekki Ísland og lýsti ánægju með það hvernig Færeyingar gera hlutina. Í því ljósi vona ég að hún hafi náð að skoða hvernig þeir halda á málefnum hælisleitenda. Færeyingar talar nefnilega skýrt þegar þeir hafa náð hámarki í móttöku hælisleitenda. Þar er móttökukerfið aðlagað að smæð samfélagsins svo það sé stjórn á málaflokknum. Á Íslandi hefur lögregluembættið á Suðurnesjum með Úlfar Lúðvíksson í brúnni verið áberandi gagnvart því að herða tökin á landamærunum. Frávísunum fjölgað um 822% á hans vakt. Samkvæmt RÚV, með leyfi forseta, vísaði hann frá fólki með tengsl við glæpahópa og fólki sem hyggst vinna á svörtum markaði.
Nú hefur staða þessa sama lögreglustjóra verið auglýst laus til umsóknar vegna stefnubreytingar á landamærunum. Það gefur alla vega ekki til kynna að það eigi að taka málaflokkinn fastari tökum. Við höfum verið með segla í kerfinu sem hafa dregið einstaklinga til landsins sem eru ekki endilega í neyð. Það er nefnilega gömul saga og ný að það er til nóg af fólki sem er tilbúið að misnota góðvild annarra. Sagan er orðin sú að við erum búin að auðvelda leiðina fyrir glæpasamtök að koma sér fyrir og auðvelda fólki að misnota kerfin okkar, jafnvel þiggja hér bætur en í raun búa áfram í sínu heimalandi. Þetta er auðvitað ekki boðlegt. Ef við ætlum að ná samstöðu um málefni innflytjenda og hælisleitenda þá þarf að vinna að því að koma í veg fyrir að sameiginlegir sjóðir okkar séu misnotaðir því að þegar við leyfum misnotkun á kerfunum okkar þá brestur samstaðan. Og í ljósi ræðu hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur þá vil ég minna á það að velsæld þjóðarinnar byggir ekki á skattkerfinu heldur á verðmætasköpun. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)