Störf þingsins.
Frú forseti. Í nýjustu tölum verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands má sjá hækkunartakt á matvöru hér á landi. Þar kemur fram að verðlag á matvöru, því sem flestar fjölskyldur kaupa í matvöruverslunum á hverjum degi, hafi hækkað þrjá mánuði í röð um meira en hálft prósent. Það jafngildir 6% ársverðhækkun sem hefur eðlilega neikvæð áhrif á verðbólgu. Tvennt er sagt skýra þetta umfram annað: Annars vegar að verðlag innlendra vörumerkja er að hækka langt umfram verðlag erlendra vörumerkja og á mannamáli þýðir það að vörurnar sem framleiddar eru á Íslandi eru að hækka hraðar í verði en vörurnar sem við flytjum inn. Hins vegar er slaknandi verðaðhald hjá ákveðnum verslunum. Ég vil í fyrsta lagi hrósa ASÍ fyrir gríðarlega mikilvæg störf í þessu verðlagseftirliti. Það hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum og heldur utan um verðlagsþróun í rauntíma, en það verður að taka þessa þróun alvarlega og ráðast í nánari athuganir á því hvaða valdi því að innlendar vörur séu að hækka svona mikið umfram það sem við flytjum inn. Samfélagið þarf að taka höndum saman og standa vörð um verðstöðugleika. Fyrirtækin í landinu verða að standa vörð um stöðugt verð.
Frú forseti. Ég ætla að fá að ljúka ræðu minni á því að minnast afa míns, hans Kristjáns Þórðarsonar, sem féll frá fyrir rúmu ári síðan, en hann hefði orðið 100 ára í dag. Það má sannarlega segja að hann hafi verið mér góð fyrirmynd, jafnaðarmaður í húð og hár sem vann fyrir sveitina sem okkur er svo kær, Barðaströndina. Hann barðist sem dæmi fyrir eflingu ungmennastarfs, uppbyggingu atvinnustarfsemi í sveitinni og nýtingu jarðvarma sem nýtist í dag samfélaginu fyrir vestan. Amma og afi sameinuðust aftur fyrr á þessu ári, blessuð sé minning þeirra.