156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Á málþingi sem haldið var 7. maí síðastliðinn á vegum ÍSÍ, UMFÍ, ÍBR og KSÍ var vakin sérstök athygli á þeirri vaxandi ógn sem af netveðmálum og fjárhættuspili stafar gagnvart íþróttastarfi og ungu fólki á Íslandi. Ég vil byrja á því að hrósa íþróttahreyfingunni fyrir að vekja máls á þessu brýna og grafalvarlega máli. Þetta er vandi sem er í örum vexti og krefst aðgerða af hálfu löggjafans. Íslensk löggjöf er skýr, hegningarlög banna bæði veðmál og fjárhættuspil og samkvæmt lögum um happdrætti er aðeins hægt að reka slíka starfsemi með sérstöku leyfi ráðherra og þá einungis í almannaþágu. Þrátt fyrir þetta starfa fjölmörg erlend veðmálafyrirtæki hérlendis án leyfis með árásargjarnri markaðssetningu sem beinist að ungu fólki. Auglýsingar þeirra eru sýnilegar í gegnum áhrifavalda og vinsæl íþróttapodköst sem eru orðin gegnsýrð af óbeinum tengingum við slíka starfsemi.

Veðmálastarfsemi hefur aukist stórlega undanfarin ár og áhrifin eru farin að teygja sig inn í öll horn samfélagsins. Sérstaklega má nefna ungt fólk. Rannsóknir sýna að karlar á aldrinum 18–25 ára eru sá hópur sem spilar mest og er tvöfalt líklegri til að lenda í alvarlegum spilavanda en aðrir hópar. Samkvæmt upplýsingum sem fram komu á málþinginu hafa veðmálafærslur á kortum barna undir 18 ára margfaldast. Hjá Íslandsbanka jukust þessar greiðslur frá 10 millj. kr. árið 2023 í 50 milljónir árið 2024. Íslandsbanki og Indó hafa brugðist við og lokað sjálfkrafa fyrir slíkar færslur hjá börnum. Aðrir bankar mættu fylgja því fordæmi. Íþróttahreyfingin stendur frammi fyrir öflugum markaðsöflum með fjárhagslega hagsmuni í spilun og jafnvel niðurstöðu leikja í yngri flokkum og neðri deildum. Þetta grefur undan heilbrigðu íþróttastarfi.

Virðulegi forseti. Við getum ekki horft fram hjá þessari þróun. Lönd eins og Þýskaland og Norðurlöndin hafa þegar gripið til aðgerða og sett reglur til verndar. Ég legg til að við skoðum hvaða leiðir hafa reynst vel erlendis og mótum stefnu í lagasetningu sem verndar unga fólkið okkar. Við getum ekki útrýmt vandanum alfarið en við verðum að reyna það. Börnin okkar eiga það skilið. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)