Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Fíknisjúkdómar eru eitt alvarlegasta heilbrigðisvandamál samtímans, sjúkdómar sem hafa víðtæk áhrif, ekki aðeins á einstaklinga heldur einnig fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Áfengis- og vímuefnafíkn getur valdið líkamlegu og andlegu heilsutjóni, félagslegri einangrun, atvinnumissi og jafnvel ótímabærum dauðsföllum. Þess vegna skiptir höfuðmáli að tryggja fólki aðgang að viðeigandi meðferð og einkum og sér í lagi meðferð sem hentar hverjum og einum best. Á Íslandi stendur fíknisjúkum til boða bæði fagleg og góð meðferð en það er aftur á móti ekki svo að ein meðferð henti endilega öllum. Nauðsynlegt er að tryggja fjölbreytt úrræði, standi sjúklingum til boða þegar þeir eru tilbúnir að leita sér meðferðar. Einstaklingsbundin nálgun er lykillinn að árangri í þessum efnum, jafnvel svo að í sumum tilfellum getur verið mikill ávinningur falist í því að sækja meðferð út fyrir landsteinana. Breytt umhverfi, fjölbreyttari úrræði eða sérhæfðri meðferðarúrræði sem standa ekki til boða hér á landi geta skipt sköpum í bataferli.
Ég hef ítrekað talað fyrir nauðsyn þess á þingi að sjúkratryggingar taki þátt í að niðurgreiða kostnað við meðferð erlendis jafnt sem hérlendis. Nú síðast lagði ég fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um þetta efni og í ljós kemur að örfáir hafa sótt um og fengið niðurgreiðslu vegna meðferðar erlendis. Það er í engu samræmi við stærð vandans og ég veit að ástæðan er sú að einstaklingar í þessari stöðu fá þær upplýsingar að slíkt sé aðeins gert í algjörum undantekningartilfellum. Ég falaðist líka eftir sýn ráðherrans á mikilvægi þessara úrræða og ráðuneytið telur að í ljósi þess að fjöldi umsókna sé takmarkaður sé engin ástæða til að bregðast sérstaklega við. Þessu er ég ósammála. Á sama tíma og við þurfum að semja við og styrkja þá öflugu aðila sem sinna fíknisjúkdómum hér á landi þá er í sumum tilfellum lífsnauðsynlegt fyrir sjúklinga að komast af landi brott í nýtt umhverfi og fá þar meðferð við hæfi.