156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:31]
Horfa

Diljá Ámundadóttir Zoega (V):

Virðulegi forseti. Mig langar að byrja jómfrúrræðu mína á tilvitnun í mannvininn mikla Nelson Mandela, með leyfi forseta:

„Sál hvers samfélags birtist skýrast í því hvernig það annast börnin sín.“

Mikið er ég sammála honum. Ég lít svo á að það eru okkar mennsku auðlindir og mannlegu innviðir, elsku börnin okkar, sem skipta langmestu máli.

Í dag ætla ég að varpa ljósi á að mínu mati okkar arðbærustu fjárfestingar og dýrmætustu verðmætasköpun. Mér er hugsað til þeirra þúsunda barna sem hafa orðið fyrir einhvers konar ofbeldi eða jafnvel búa við viðvarandi ofbeldi á heimili sínu, til barna sem búa á heimili þar sem foreldri eða systkini glímir við fíknisjúkdóm eða geðrænan vanda. Mér er hugsað til allra einhverfra barna sem bíða eftir því að fá að finna sig í skólaumhverfi sem hentar þeirra þörfum og hlúir að taugakerfi þeirra. Mér er hugsað til barna sem búa á heimili þar sem allt er með felldu á yfirborðinu, kótelettur í raspi, brúnaðar kartöflur og grænar Ora-baunir á sunnudögum, en foreldrarnir hafa ekki burði til að tengjast börnunum tilfinningalega. Allt þetta og miklu meira til er markerandi reynsla og áföll sem geta haft skaðleg áhrif á börnin okkar, með alvarlegum afleiðingum á andlega og líkamlega heilsu inn í fullorðinsárin.

Ég hef séð nýlega útreikninga sem benda á það að fjárfesting í að grípa barn sem hefur orðið fyrir alvarlegu áfalli nemur ekki nema 2–3% af kostnaðinum við að bera þennan sama einstakling brotinn í gegnum kerfin og út lífið. Því hvet ég þingheim til þess að sameinast í því að hafa kjark til að taka samstiga og stærri skref. Við verðum að láta sögurnar af þessum dýrmætu einstaklingum og tölfræðina tala saman. Hvað er orsök og hvað er afleiðing? Hvorum megin ætlum við að vera þegar kemur að fjárfestingu í hverju barni? Takk fyrir mig.