Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það eru mikil lífsgæði fólgin í því frelsi að fá að velja sér búsetu og tegund híbýla sinna, um leið að bera sjálfur ábyrgð á sínum eigin málum. Ég gerði þetta að umtalsefni í grein sem birtist í Víkurfréttum í dag, mikilvægi þess að fá að hafa val um hvort við viljum búa í fjölbýli eða sérbýli, þar sem ég var að vara við nýsamþykktri húsnæðisstefnu í Reykjanesbæ sem er fullmikið í takt við húsnæðisstefnuna hér í höfuðborginni sem er að valda miklum vandræðum og deilum og öðru slíku.
Það eru líka mikil lífsgæði fólgin í því að fá að ákveða umhverfi sitt, hvaða þjónusta er í boði, hvað er í næsta nágrenni og annað slíkt. Þessu fengu Grindvíkingar að kynnast þegar þeir þurftu að rýma Grindavíkurbæ en þangað hafði nefnilega áður flutt fullt af fjölskyldum sem völdu þau lífsgæði sem þar voru í framboði á sérbýlum á hagkvæmu verði, gott íþróttastarf og skólar og það umhverfi og stuttar vegalengdir og annað sem er. Núna hefur vel á annað hundrað af þessum fjölskyldum óskað eftir því að fá umönnunarsamning við stjórnvöld, að fá hugsa um eignirnar og reka þær fyrir stjórnvöld, sínar fyrri eignir, til að máta sig við það hvort þau geti og treysti sér til að flytja aftur heim í þau lífsgæði sem þau völdu. En því miður koma engin svör frá stjórnvöldum enn þann daginn í dag um hvort þeim sé treystandi til að taka þá ábyrgð að gista eina nótt í þessu húsnæði. Það fylgir því ekkert frelsi og þau fá ekki að taka þessa ábyrgð. Ég skora á stjórnvöld að svara þessum fjölskyldum sem vilja búa við þessi lífsgæði, að fá máta sig aftur við sín fyrri híbýli og gera það fljótt.