Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Tilgangur erfðalaganna er að tryggja hagsmuni eftirlifandi ættingja og skilgreina erfiðaréttinn. Erfðalögin eins og þau standa í dag byggja á þeim forsendum að andlát beri að garði eftir heila mannsævi. Lögin tóku breytingum síðast árið 1989. Upprunalegt verndarsjónarmið erfðaréttar var að tryggja afkomu eftirlifandi ættingja. Hins vegar er tímabært að skoða hvort þessi vernd nái sannarlega utan um alla erfingja. Erfðalögin taka ekki nægilega vel utan um aðstæður í tengslum við andlát maka sem lætur eftir sig forsjárlaus börn, hvað þá ef maki lætur eftir sig stjúp- eða fósturbörn.
Vil ég nota tækifærið hér og nefna réttinn til setu í óskiptu búi. Réttur til setu í óskiptu búi er eitt lykilatriðið í erfðalögunum en hann tekur til hjóna sem saman hafa byggt upp eignir og skuldbindingar. En hann er ekki tryggður þar sem erfingjar geta krafist skipta. Í þeim tilfellum geta skapast aðstæður sem tryggja ekki hagsmuni ófjárráða erfingja, sérstaklega þeirra barna sem eiga á hættu að missa öryggi sitt og heimili. Raunin er sú að í mörgum tilfellum þar sem skipta þarf búi í slíkum aðstæðum þá neyðist eftirlifandi maki til að selja heimili fjölskyldunnar þó að hann einn hafi staðið undir öllum fjárhagslegum skuldbindingum eftir andlát maka. Til að skapa sanngjarnan rétt tel ég farsæla lausn að endurskoða lögin svo að eftirlifandi maki geti setið lengur í óskiptu búi þar til að öll börn á heimilinu eru orðin fjárráða.
Forseti. Meginmarkmið erfðalaganna á að vera að tryggja hagsmuni allra eftirlifandi ættingja. Ef lögin eins og þau standa í dag skekkja vægi milli hagsmuna og auka byrði eftirlifandi maka, sem situr eftir með ófjárráða börn, er ljóst að markmiðið næst ekki í nútímasamfélagi. Það er kominn tími til að breyta erfðalögunum svo að tryggja megi hagsmuni syrgjandi barnafjölskyldna.