156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

Störf þingsins.

[15:38]
Horfa

Sigurður Helgi Pálmason (Flf):

Virðulegi forseti. Á tímum örra tæknibreytinga og alþjóðavæðingar hefur landslag fjölmiðlanna tekið stakkaskiptum Sífellt fleiri auglýsingakrónur renna nú til erlendra miðla sem hafa fá eða engin tengsl við íslenskt samfélag. Þetta hefur haft djúpstæð áhrif á rekstrargrundvöll fjölmiðla en sérstaklega má nefna héraðs- og bæjarblöð um land allt sem áður treystu á staðbundnar auglýsingatekjur til að standa undir sinni mikilvægu starfsemi. Héraðs- og bæjarblöðin gegna lykilhlutverki í því að halda uppi lýðræðislegri umræðu í nærumhverfi okkar. Þau veita íbúum upplýsingar um það sem skiptir máli á staðnum, ákvarðanir sveitarstjórna, félagslíf, atburði, öryggi, framkvæmdir og margt fleira. Þetta eru oft upplýsingar sem stærri miðlar geta ekki sinnt og sem hverfa í skugga stærri frétta á landsvísu.

Þegar ég fluttist á Reykjanesið fékk ég langmestar upplýsingar um mitt nærsamfélag frá Víkurfréttum. Þar fékk ég innsýn í málefni svæðisins sem annars hefðu farið fram hjá mér. Fréttaflutningur þar er nákvæmur og byggður á þekkingu blaðamanna sem þekkja samfélagið og tala máli þess og þeirra sem þar búa. Því skiptir miklu máli að við styðjum við bakið á þessum fjölmiðlum. Stuðningur ríkis er afar mikilvægur í þessu nýja landslagi miðla og það að kökunni sé skipt á milli þeirra á sanngjarnan hátt er grundvöllur þess að við pössum upp á jafna umfjöllun um land allt. Þeir eru ekki aðeins fréttamiðlar heldur líka tengslanet samfélagsins, sameiginlegur vettvangur þar sem raddir íbúanna fá að heyrast.