embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Virðulegur forseti. Ég vil nota þetta tækifæri og vera á svipuðum nótum og sá sem hér var á undan mér, hv. þm. Bergþór Ólason, um umrædda breytingu á embætti og hvernig er upplýst um þá ákvörðun. Nú er sú sem hér stendur mjög hlynnt því að stöður séu auglýstar og starfsaðstæður opinberra starfsmanna séu teknar til endurskoðunar. Það hefur verið rætt hér oft í þessum þingsal og er eitthvað sem ég tek algerlega undir. En það vekur óneitanlega athygli, eins og kom fram í máli hv. þingmanns hér á undan, hvernig þetta ber að og ekki síst skýringar hæstv. ráðherra sem segir að ákvörðunin byggi á pólitískum áherslum ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Af því má draga þá ályktun að ákvörðunin byggi ekki á málefnalegum ástæðum heldur pólitískum og því spyr maður sig, (Forseti hringir.) því að umræddur embættismaður hefur lýst opinberlega mjög sinni skoðun á ástandinu við landamærin. Ég vona að svo sé ekki (Forseti hringir.) en einhverjir gætu túlkað þetta að hér væri um þöggun að ræða. En ég tek undir að þetta þurfi að ræða frekar.