156. löggjafarþing — 42. fundur, 14. maí 2025.
embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Eitt er að fara rækilega yfir tímann sem er til þess að ræða fundarstjórn forseta. Hitt er það sem forseti vill benda á, að undir fundarstjórn forseta erum við ekki að ræða um auglýstar stöður eða efnislega um önnur mál heldur en fundarstjórn forseta, eins og reyndar fyrsta ræðumanni tókst að gera hér í sinni ræðu um fundarstjórn forseta. Ég bið hv. þingmenn að hafa það í huga að misnota ekki þennan ágæta dagskrárlið.