embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir beiðni hv. þm. Bergþórs Ólasonar um að hér sé myndað rými í dagskránni til að ræða þetta mál. Ég vil líka fá að þakka virðulegum forseta fyrir að taka það alvarlega og beina því til hæstv. ríkisstjórnar að vera hér til staðar við 1. umræðu í málum. Það skiptir miklu máli. Ég vil hrósa fundarstjórn forseta hvað það varðar. Ég vil þá líka hvetja frú forseta til þess að senda slík skilaboð til hæstv. ríkisstjórnar að virða þingið og koma fyrst með málin hér til þingsins og fá þau samþykkt í þinginu áður en er byrjað að gera ráðstafanir út frá því sem hæstv. ráðherrar ætla sér að gera. Þau ætla að setja búsetuúrræði undir lögreglustjóraembættið og breyta embættinu en ætla samt að gera ráðstöfun núna. (Forseti hringir.) Þau ætla að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar en ætla samt að geta skipað stjórnina. Ég bið frú forseta um að taka það alvarlega hvernig er komið fram við hv. Alþingi.