embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Virðulegi forseti. Hér er rætt um það hvort hæstv. dómsmálaráðherra eigi að ræða við þingheim eitthvað frekar um þetta mál sem hér hefur verið vísað til. Mig langar að segja í þessu samhengi að mér finnst það frekar ósmekklegt af þingmönnum Miðflokksins að reyna að snúa þessu þannig að þarna sé um einhverja pólitíska aðför að embættismanni að ræða. Það er verið að breyta embættinu og það er auðvitað mjög eðlilegt að við þær breytingar sé auglýst. Þetta hefur ekkert með frammistöðu téðs embættismanns að gera, það hefur komið skýrt fram hjá ráðherranum og mér finnst það satt best að segja frekar ósmekklegt þegar menn koma hérna og setja orð í munn hæstv. dómsmálaráðherra. Ráðherrann hefur farið mjög vel yfir það hvers vegna er verið að gera þetta og að búa til einhverja pólitík úr því er bara beinlínis dapurlegt. Þessar breytingar, sem ég hygg að þingheimur — það kæmi mér á óvart ef það væri ekki vænn meiri hluti í þinginu fyrir þessum breytingum. Þær kalla auðvitað á að staðan sé auglýst. Ég ætla bara að leyfa mér að fullyrða að ef hún væri ekki auglýst þá væri verið að gagnrýna það.