156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.

[15:53]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Frú forseti. Það kom nokkuð á óvart að það væru gerðar athugasemdir við fundarstjórn atvinnuveganefndar. Það er nú þannig að sá sem hér talar er allur af vilja gerður til að koma til móts við minni hlutann í nefndinni. Þær óskir sem þar koma fram eru m.a. að fá meiri tíma með gestum og þess vegna var brugðið til þess ráðs að halda fundinn aðeins fyrr á daginn, sem ég taldi ekkert tiltökumál, að mæta átta í vinnuna í staðinn fyrir níu. Síðan hafa komið upp óskir um að ræða fleiri mál heldur en hafa verið sett á dagskrá af meiri hlutanum, m.a. um málefni Bakka. Minn hugur stóð til þess að setja það á dagskrá næstkomandi föstudag. Það er greinilega snúið að koma til móts við allar óskir og þarfir en það skal ítrekað að formaður nefndarinnar, sá sem hér stendur, er allur af vilja gerður til að koma til móts við óskir hv. þm. Jóns Gunnarssonar.