embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Forseti. Samtök sjávarútvegssveitarfélaga hafa verið að undirbúa fund núna á föstudaginn í einhvern tíma. KPMG er að vinna skýrslu um áhrifamat á þessar byggðir og á að kynna þær þar. Þess vegna kom þessi einfalda beiðni frá þeim sem hér stendur um það að nefndin hefði tækifæri til að sækja þann fund. Þið sjáið að tengslin eru mikil á milli atvinnuveganefndar og þessa máls, sem eru veiðigjöldin. Enn sem komið er hefur ekki verið tekið sérstaklega vel í það að við myndum þá kannski getað byrjað fund klukkan hálftíu í staðinn fyrir hefðbundinn tíma, níu, en svo er verið að færa fundi til átta.
Ég vil hins vegar vekja sérstaklega athygli á því, frú forseti, að eins og ég skil það núna og var að frétta rétt áðan þá á að taka tillit til þess í störfum allsherjar- og menntamálanefndar svo að þingmenn þeirrar nefndar geti sótt þennan fund sem á greinilega ekki að hleypa þingmönnum í atvinnuveganefnd á. Þannig að ég held að það væri góður bragur á því (Forseti hringir.) að formaður atvinnuveganefndar myndi líta til formanns allsherjar- og menntamálanefndar í þessu máli og leyfa það sama þar.