156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.

[15:56]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. forseta fyrir að ætla að hlutast til um að ráðherrar séu hér þegar þeirra er óskað við umræðu mála og er það gott.

Ég fékk nú bara fréttir frá hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni um að hv. formaður í allsherjar- og menntamálanefnd ætlaði að hleypa okkur á þennan fund í Hörpu. Ég hvet hæstv. forseta til að fresta fundum í nefndum til tíu á föstudaginn þannig að allir þingmenn sem vilja komist á þennan fund því að þarna er mikilvægt málefni til umræðu. Sveitarfélögin hafa sent harðorða gagnrýni og þarna náum við milliliðalausu samtali við sveitarfélögin.