embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Virðulegur forseti. Þar sem mér láðist að nefna það sérstaklega hérna áðan þá vil ég auðvitað taka fram og taka undir það að auglýsingar í embætti og skipanir á vegum hins opinbera verði til umfjöllunar hérna í þinginu því það virðist ætla að verða einhver mikil breyting þar á miðað við yfirlýsingar hæstv. dómsmálaráðherra sem hér er til umfjöllunar. Eftir hæstv. ráðherranum er haft að pólitískar áherslur ríkisstjórnarinnar hafi þarna verið í forgrunni þegar ákveðið var að auglýsa þetta starf og breyta því. Þetta er stórmál, hvaða stefna á að vera ríkjandi þegar embættin verða auglýst framvegis. Við erum hlynnt auglýsingum en að þetta sé til komið vegna pólitískra áherslna ríkisstjórnarinnar er nýtt fyrir okkur mörgum a.m.k., þannig að það er full ástæða til að ræða þetta sérstaklega hérna í þingsal. — Ég vona að þetta falli undir fundarstjórn, virðulegur forseti.