156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.

[16:03]
Horfa

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er alveg eðlilegt að hv. þingmenn komi hér upp og velti þessari stöðu fyrir sér. Sjálfri þykir mér mjög eðlilegt og það mætti vera oftar að ráðherra nýti sér þann rétt að auglýsa stöður og gangi fram með þeim hætti að þær séu auglýstar á fimm ára fresti eins og lög leyfa. En í þessu verður ekki bæði sleppt og haldið. Þú getur ekki bæði haldið því fram að þar hafi legið pólitískar áherslur og ákvarðanir og síðan í næstu frétt, daginn eftir, sagt að þeim aðila sé í lófa lagið að sækja aftur um og að þú hafir engan veginn ætlað að breyta neinu heldur bara auglýsa stöðuna, sem vitaskuld er heimilt. En þarna verður ekki bæði sleppt og haldið. Þú getur ekki nýtt þau rök að það standi til vegna einhverra pólitískra breytinga, þar sem augljóslega er ekki kosið að aðilinn sæki aftur um, það er skýrlega gefið til kynna. En þú getur vissulega auglýst stöðuna og leyft öllum, og þar á meðal (Forseti hringir.) sitjandi forstjóra að sækja um stöðuna. Ég tek því undir með hv. þingmönnum hér að það er kominn tími á að þessi ríkisstjórn setji einhver mál hér á dagskrá, hvað þau ætli sér í þessum efnum (Forseti hringir.) svo að við getum þá rætt um þær pólitísku breytingar.