156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.

[16:05]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Við komum rétt inn á áðan með fund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga á föstudaginn. Hitt málið sem ég óskaði eftir að yrði tekið upp í atvinnuveganefnd, og sendi tölvupóst um það á föstudaginn til nefndarinnar, er þessi grafalvarlega staða sem komin er upp á Húsavík og að fá góða kynningu á þeirri stöðu með sveitarstjórninni, sveitarstjóra, forsvarsmönnum PCC á Bakka við Húsavík og síðan Samtökum iðnaðarins til að meta þessa alvarlegu stöðu sem er komin upp og líka í stærra samhengi þannig að við þingmenn hefðum einhverja tilfinningu fyrir því hvað er að gerast. Það er rétt sem kom fram áðan hjá hv. þm. Jóni Gunnarssyni að umræðan fram að þessu hefur verið að setja einhvern fund á utan hefðbundins þingfundatíma. En það er þá gott að heyra núna að hv. formaður atvinnuveganefndar er kominn á þá skoðun að vera með fundinn á föstudaginn þannig að ég legg til að hann gæti orðið bara klukkan tíu á föstudaginn eftir að fundi lýkur á Hilton Nordica, fundi Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga.