embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Herra forseti. Rétt er að vekja athygli þingheims á því að umræddur fundur á föstudaginn er á starfsáætlun þingsins og þingmenn eiga auðvitað að leggja metnað sinn í það að sækja fundi sem eru á starfsáætlun og eiga ekki að koma neinum á óvart. Ef menn kjósa að sækja frekar fundi einstakra hagsmunasamtaka er þeim velkomið að gera það. Það er ekkert sem bannar þeim að gera það. Ég vil bara benda hv. þingmönnum stjórnarandstöðunnar á það að það er verið að koma til móts við óskir þeirra um að koma með fundarefni fyrir á föstum fundartíma. Mögulega væri það hægt á föstudaginn. Þá finnst mér það sérkennilegt, herra forseti, að menn séu einnig óánægðir með það. Það er svolítið erfitt að koma til móts við stjórnarandstöðuna, þegar það er loksins gert þá taka menn því einnig illa. Þeim er auðvitað frjálst að vera á öðrum fundum en á atvinnuveganefndarfundi, en það er skylda þingmanna að sækja nefndarfundi og sinna störfum sínum af kostgæfni.