embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Herra forseti. Ég tel rétt að benda á hversu sérkennilegar en þó hefðbundnar umvandanir hv. þm. Sigmars Guðmundssonar voru hérna áðan. Hv. þingmaður skammaðist yfir því að sérstaklega hv. þingmenn Miðflokksins hefðu gert brottvikningu lögreglustjórans á Suðurnesjum pólitíska. Ráðherrann, hæstv. dómsmálaráðherra, lýsti því beinlínis yfir í fjölmiðlum að ástæður þessara breytinga væru pólitískar. Svo toppaði eiginlega hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson þetta með athugasemdum sínum hérna áðan, að það væri verið að saka mann úti í bæ um eitthvað með því að halda því fram að hann hefði verið rekinn. Ég vísa nú bara í viðtöl við og yfirlýsingar þessa sama manns og á því er byggt hér, svoleiðis að þessar mótbárur við því að hér verði tekið til umræðu þetta aðkallandi mál eru einskis virði og minna en það.