156. löggjafarþing — 42. fundur,  14. maí 2025.

embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.

[16:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Núna er það ekki svo að hv. þingmenn Miðflokksins valdi mér einhverri sérstakri geðshræringu, alls ekki. Ég átta mig alveg á því hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í þessum sal. Ég átta mig á því að við erum öll í pólitík og við erum oft ósammála. Það sem ég er hins vegar að gagnrýna er að verið sé að halda því fram fullum fetum í ræðustól Alþingis að hæstv. dómsmálaráðherra hafi rekið lögreglustjórann á pólitískum forsendum. Það er tekin pólitísk ákvörðun um að breyta embættinu. Það er verið að stækka, það er verið að auka umfangið og þá er auðvitað eðlilegt að auglýsa stöðu upp á nýtt út frá þessum breyttu forsendum. Það er rosalegur munur á þessu og að segja að hæstv. dómsmálaráðherra sé að reka lögreglustjóra vegna pólitíkur. Það er bara alger eðlismunur á þessu. Höfum það algerlega á hreinu. Ég þykist vita að við skiljum öll muninn þarna á milli og mér finnst menn, svo ég segi það aftur, leggjast svolítið lágt hér í þessum þingsal að búa til þessa tengingu gegn (Forseti hringir.) betri vitund, vegna þess að þetta hefur komið rækilega fram hjá hæstv. dómsmálaráðherra.