embætti lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Virðulegur forseti. Mig langar í seinni ræðu minni um fundarstjórn forseta að ræða ósk mína um að búið verði til rými hér í dagskrá þingsins til að ræða þá stefnubreytingu sem hæstv. dómsmálaráðherra virðist hafa kynnt með einum eða öðrum hætti í gær. Varðandi orð hv. þm. Sigmars Guðmundssonar, þingflokksformanns Viðreisnar, þá held ég að þeir sem hafa talað á þeim nótum sem þingmaðurinn vísar til séu augljóslega bara að vísa í orð þess einstaklings sem nú er tilkynnt að geti sótt um starfið sem hann gegnir í dag eins og hver annar sem um það mun sækja. En ég bara ítreka hvatningu mína til hæstv. forseta og vil gjarnan fá upplýsingar um hver afstaða virðulegs forseta er til þess að skapa pláss í dagskránni til að við getum rætt þetta mál, því að staðan á landamærum í víðum skilningi og viðbrögð við henni eru mál sem þarf að ræða hér og átta sig á (Forseti hringir.) og glöggva sig á þeim breytingum sem ráðherrann áformar.