fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd utanríkismálanefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um fullgildingu fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands.
Nefndin fjallaði um málið og fékk gesti á sinn fund eins og kemur fram í nefndaráliti sem liggur frammi og þingmenn geta kynnt sér.
Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til fullgildingar á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Konungsríkisins Taílands sem undirritaður var í Davos í Sviss 23. janúar 2025.
Í greinargerð með tillögunni kemur fram að fríverslunarsamningurinn liðki fyrir vöru- og þjónustuviðskiptum milli samningsaðila og feli auk þess í sér skuldbindingar sem lúta að fjárfestingum, vernd hugverka og sjálfbærri þróun. Í samningnum er kveðið á um niðurfellingu tolla á allar helstu útflutningsafurðir Íslands, ýmist strax við gildistöku hans eða í áföngum á lengra tímabili. Í samningnum er einnig kveðið á um samstarfsverkefni milli íslenskra og taílenskra aðila á sviði sjálfbærra fiskveiða og fiskveiðistjórnar en Taílendingar eru meðal stærstu fiskveiðiþjóða heims. Samningurinn veitir íslenskum fyrirtækjum auknar heimildir til fjárfestinga í Taílandi og bætir aðgang íslenskra þjónustuveitenda að taílenskum markaði.
Þá kemur fram í greinargerð að vöruútflutningur frá Íslandi til Taílands hafi numið 650 millj. kr. árið 2024 og að verðmæti innfluttra vara frá Taílandi hafi numið 5,7 milljörðum kr. Útflutningur á þjónustu til Taílands nam rúmlega 1,2 milljörðum kr. árið 2023. Á sama tíma nam innflutningur þjónustu rúmlega 1,7 milljörðum kr.
Nefndin tekur undir það mat að með samningnum sé lagður grunnur að bættri samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja, fjárfesta og einstaklinga í Taílandi.
Virðulegi forseti. Minnt er á að fyrr í vor heimilaði Alþingi fullgildingu samnings um viðskipti og efnahagslega samvinnu milli EFTA-ríkjanna og Lýðveldisins Indlands sem markar tímamót sem fyrsti fríverslunarsamningur sem Indland gerir við Vesturlönd. Þá heimilaði Alþingi fullgildingu á bókun um breytingu á fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna og Chile sem uppfærir þann samning. Það er mikilvægt og um leið táknrænt að EFTA vinnur hörðum höndum að því að efla fríverslun nú þegar blikur eru á lofti í alþjóðaviðskiptum.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að tillagan verði samþykkt
Undir þetta nefndaráliti rita hv. þingmenn Pawel Bartoszek, Dagbjört Hákonardóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Helgi Pálmason, Sigurður Ingi Jóhannsson, Víðir Reynisson og sá sem hér stendur, Sigmar Guðmundsson.
Það er auðvitað ánægjulegt að það skuli vera þverpólitísk sátt um þetta meðal allra flokka á þingi.