156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.

[10:31]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Frú forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur útskýrt gagnvart þinginu að hann muni ekki gera kröfu til Flokks fólksins um ólögmæta styrki þeim til handa þar sem flokkurinn hafi verið í góðri trú. Nú hefur komið í ljós að bæði ríkið leiðbeindi í Flokki fólksins um hvernig bæri að bera sig að til að eiga rétt á þessum styrkjum og ekki nóg með það, heldur fékk fjármálaráðherra tölvupóst þann 23. janúar sl. frá Ríkisendurskoðun þar sem er tilgreint og tilkynnt að Flokkur fólksins hafi fengið þessa leiðbeiningu og hafi því alls ekki verið í neinni góðri trú. Þessi tölvupóstur barst áður en hæstv. fjármálaráðherra tjáði sig með þeim hætti sem hann gerði sem augljóslega stenst enga skoðun. Ég óska eftir því, frú forseti, að forseti hlutist til um að hæstv. fjármálaráðherra komi hér til þings og útskýri orð sín sem stangast hér svo augljóslega á.