156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.

[10:32]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Hildar Sverrisdóttur og það er auðvitað bagalegt hversu þunnskipaður ráðherrabekkurinn er hér í dag. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur ekki komið hér í fyrirspurnatíma í þessari viku þegar allt bókstaflega logar í hennar stóli vegna t.d. þessa máls sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir minntist á og einnig vegna atburða á Suðurnesjum hvað varðar stöðu lögreglustjóra þar. Það væri auðvitað líka gott að hafa hér fjármálaráðherra en við fögnum því að hæstv. félagsmálaráðherra er hér. En það væri mjög þarft ef dómsmálaráðherra gæti nú verið hér og útskýrt fyrir hæstv. fjármálaráðherra og hæstv. félagsmálaráðherra hvað það er að vera í góðri trú, svona lögfræðilega, hvað það þýðir. Það væri ekki vanþörf á því.