ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.
Virðulegi forseti. Þegar hæstv. fjármálaráðherra segir að Flokkur fólksins hafi verið í góðri trú, á sama tíma og gögn voru fyrirliggjandi í ráðuneytinu og fulltrúar ríkisins hjá Skattinum og Ríkisendurskoðun höfðu varað flokkinn við, þá verður í rauninni sú yfirlýsing ótrúverðug og vekur upp spurningar hvort hæstv. ráðherra sé að verja framkvæmdina pólitískt fremur en að halda sig við staðreyndir sem liggja fyrir. Við sem þingmenn verðum auðvitað að fylgja lögum og ráðherrar líka og standa vörð um skýra ábyrgð og þegar ráðherra talar gegn betri vitund eins og í rauninni þessar upplýsingar gefa til kynna að hann hafi gert þá auðvitað spyr maður sig hvort hann sé að verja verklag eða forðast einhverjar afleiðingar. Þetta mál skiptir gríðarlega miklu máli fyrir traust almennings varðandi ríkisstyrki til stjórnmálasamtaka og það er mikilvægt að fá þetta á hreint þannig að ég tek undir orð hv. þm. Hildar Sverrisdóttur um að fá svör við þessu.