ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.
Hæstv. forseti. Ég tek undir beiðni hv. þingmanna sem hér hafa talað á undan mér um að fjármálaráðherra komi til þings og útskýri hvers vegna hann ákvað að greiða út úr ríkissjóði stórar fjárhæðir þegar Ríkisendurskoðun var búin að vara við og segja að þessar greiðslur væru ekki í samræmi við góða reglu.
Ég vil líka vekja athygli á því, frú forseti, að snemma í þessu ferli, þegar þetta mál var til athugunar og til umfjöllunar í fjölmiðlum, þá kom hæstv. félagsmálaráðherra í viðtal og sagðist hafa „vitað“ af þessum formgalla sem væri á því að Flokkur fólksins hefði fengið álitlegar fjárhæðir úr ríkissjóði en dró síðan þetta til baka, eða reyndi það, í öðru viðtali. (Forseti hringir.) Þannig að það er alveg ljóst, frú forseti, að Flokkur fólksins var ekki í góðri trú um að taka við þessu fé.