156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.

[10:37]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Forseti. Það er ágætt að vita að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hafi lögmæt forföll að þessu sinni, sem hann hafði ekki hér á laugardaginn þegar hann sat í næsta húsi í stað þess að mæta til þings og svara spurningum þingmanna. En, hæstv. forseti, það er með eindæmum hvernig þetta svokallaða styrkjamál hefur undið upp á sig. Hæstv. ríkisstjórn ætlaði einhvern veginn að reyna að setja lok á pottinn og kasta einhverju yfir á Sjálfstæðisflokkinn en nú er auðvitað bersýnilega komið í ljós að það vantaði enga leiðbeiningarskyldu, enda vissum við það öll. Þau orð hæstv. fjármálaráðherra hafa algerlega fallið um sjálf sig því að við vitum að það var búið að senda ítrekaðar ábendingar til Flokks fólksins og þar af leiðandi algerlega ljóst að Flokkur fólksins tók ekkert við þessum fjármunum í góðri trú eins og haldið hefur verið fram. Þeim var það fyllilega ljóst að þau uppfylltu ekki þau skilyrði sem lögin kváðu á um. Svo óskar hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra eftir því að Ríkisendurskoðun, sem er reyndar sjálfstæð stofnun, taki málið til skoðunar. Síðast er ég vissi hafði Ríkisendurskoðun reyndar ekki enn þá svarað þeirri beiðni. En hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd er að fara yfir málið og alveg ljóst að það er enn nóg að fara yfir í þessu máli.