ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.
Frú forseti. Ég hef furðað mig á upphrópunum stjórnarandstöðunnar undir þessum lið. Annars vegar er verið er að beina fyrirspurnum til fjarstadds ráðherra og síðan er verið að ræða hér styrkjamálið og beina því til fjarstadds ráðherra. Þegar formaður Flokks fólksins er hér fyrir svörum þá er auðvitað miklu nærtækara að taka þessa umræðu þar í stað þess að vera hér að kalla eftir fjarstöddu fólki sem hefur lögmæt forföll.
En eitt í þessu, vegna þess að verið er að tala um að eitthvað sé órannsakað í þessu máli og allt það: Þetta mál er búið að vera fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd síðustu mánuði og búið að velta öllum steinum þar við og eftir því sem fleiri steinum er velt við þá kemur nú í ljós að allur málatilbúnaður stjórnarandstöðunnar, hann er ekki mikill í þessu máli. Þannig að ég er alveg á því að stjórnarandstaðan sé hér að þyrla upp einhverju moldviðri (Forseti hringir.) um lítið sem ekkert formsatriði.