156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.

[10:43]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Það eru alltaf að hlaðast fleiri steinar í þessa hleðslu sem hvílir nú um stundir helst á baki hæstv. fjármálaráðherra þar sem hann tekur þessa ákvörðun sína nú í vetur vitandi það — og það er margbúið að upplýsa það, og núna með þessu bréfi Ríkisendurskoðunar sem barst til Flokks fólksins í nóvember 2023, það er svo langt síðan, auk annarra samskipta. Ég vil einnig benda á að hæstv. formaður flokksins var flutningsmaður á lagafrumvarpinu og samþykkti það hér á Alþingi. Þess vegna finnst mér ekki úr vegi að bent sé á að það væri gott að hæstv. dómsmálaráðherra væri hér og upplýsti fjármálaráðherra og hæstv. félagsmálaráðherra um hvað það þýðir lögfræðilega að vera í góðri trú, hvað það þýðir. Það er auðvitað ekki góð trú ef þú veist alla anga málsins.