ákvörðun fjármálaráðherra varðandi endurgreiðslu styrkja til Flokks fólksins.
Hæstv. forseti. Ég get nú ekki látið hjá líða sem gamall gæslumaður ríkissjóðs til margra ára að benda á að það eru vissar reglur um það hvernig greiða má úr ríkissjóði. Það er samkvæmt fjárheimildum eða samkvæmt lagaákvæðum. Ef menn greiða úr ríkissjóði eitthvað sem er réttlaust eða ekki samkvæmt góðri reglu þá eiga menn náttúrlega að bera ábyrgð á því. Fjármálaráðherra er erlendis. Ég vona að hann horfi á Alþingisrásina í frítíma sínum og þá getur hann kannski velt því fyrir sér hvað það þýðir að greiða úr ríkissjóði eitthvað sem ekki átti að gera. Hann getur þá mætt nestaður hingað til Íslands aftur og til þings til að útskýra það (Forseti hringir.) hvers vegna hann ákvað að greiða úr ríkissjóði téða upphæð.
(Forseti (ÞSv): Fram hefur komið við þessa umræðu um fundarstjórn forseta að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra er í opinberum embættiserindum í útlöndum.)