styrkir til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir afar góða fyrirspurn sem kannski er ekki alveg á rökum reist heldur er hún einhliða, en það breytir ekki þeirri staðreynd að ég lít á Fjölskylduhjálp Íslands sem algjöra grundvallarstoð í samfélaginu til þess einmitt að taka utan um okkar minnstu bræður og systur. Þess vegna var ég frekar döpur yfir því þegar ég veitti velferðarstyrki í mars síðastliðnum að Fjölskylduhjálp Íslands hafði ekki sent inn formlega umsókn og beiðni þar að lútandi sem í rauninni þarf að fylgja, það eru ákveðnar reglur sem við þurfum að fylgja til að geta veitt slíka styrki. Þess vegna hef ég í kjölfarið verið að reyna að finna það út hvernig mitt ráðuneyti sérstaklega getur komið til móts við Fjölskylduhjálp Íslands, enda er þessi þingmaður, núverandi hæstv. ráðherra sem hér stendur, sá sem hefur staðið hér hvað lengst og mest í pontu frá því að ég var kosin á Alþingi Íslendinga 2017 og hef í hverju fjáraukalagafrumvarpinu á fætur öðru óskað eftir því að veittur yrði frekari stuðningur til þeirra hjálparsamtaka sem styðja við okkar minnstu bræður og systur. Meginástæða þess að ekki hefur verið veittur þessi velferðarstyrkur í mars síðastliðnum frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til Fjölskylduhjálparinnar var að því miður þá barst ekki formleg umsókn þar að lútandi. En ég get glatt hv. þm. Hildi Sverrisdóttur og alla aðra þingmenn að það er ekki það sama og að slengja í lás og ætla ekki að styðja við Fjölskylduhjálp Íslands.