156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

meðferð trúnaðargagna hjá RÚV.

[10:53]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Eins og alþjóð veit var nýlega upplýst að trúnaðargögn úr lögreglurannsóknum, m.a. símtalaskrár og rannsóknarupplýsingar sem áttu að vera í öruggri vörslu hjá embætti sérstaks saksóknara, hafi lent í höndum einkaaðila og í kjölfarið orðið að umfjöllunarefni hjá Ríkisútvarpinu, okkar ríkisfjölmiðli. Í þættinum Kveik var sýnt fram á hvernig þessar viðkvæmu upplýsingar voru nýttar af einkafyrirtæki sem stofnað var af fyrrverandi lögreglumönnum. Síðar urðu gögnin, sem varða afar viðkvæm málefni einstaklinga, hluti af sjónvarpsumfjöllun. Þarna er um að ræða símtöl, persónuleg samskipti og aðrar trúnaðarupplýsingar sem einstaklingar áttu engan veginn von á að yrðu birtar opinberlega. Þetta vekur eðlilegar og brýnar spurningar um hvernig meðferð ólögmætra trúnaðargagna er háttað hjá Ríkisútvarpinu og hvaða ábyrgð hvílir á þeim sem fara með stjórn þess þegar slíkar upplýsingar eru birtar. Það er ekki deilt um mikilvægi upplýsinga fyrir opinbera umræðu en þegar ríkisfjölmiðill fer með gögn sem aldrei áttu að birtast almenningi með þessum hætti er málið auðvitað komið á annað stig.

Ég spyr því hæstv. menningarmálaráðherra: Telur hæstv. ráðherra mikilvægt að Alþingi óski eftir sérstakri skýrslu frá Ríkisútvarpinu um hvernig haldið er utan um og farið með gögn sem upphaflega eru í vörslu lögreglu og einkum þau sem teljast þá ólögmæt til dreifingar?