meðferð trúnaðargagna hjá RÚV.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Nú er bara allt í lagi að upplýsa það strax í upphafi að útvarpsstjóri er ráðinn af stjórn RÚV og það er reyndar Alþingi, allir flokkar, sem skipar stjórnina. Þó að ráðherra fari með eignarhlut íslenska ríkisins þá er stjórnin með æðsta vald í málefnum þess og ber ábyrgð á rekstri og ráðherra hefur ekki inngrip og mun ekki hafa inngrip í einstaka efnisumfjöllun eða fréttaöflun að öðru leyti. Það væri nýmæli og ég held að við myndum ekki færast úr 17. sætinu, sem við sitjum í núna á alþjóðlegum listum yfir traust til fjölmiðla, ef pólitísk afskipti yrðu meiri af heimildaöflun eða fréttaumfjöllun. Ég vara þess vegna við því að Alþingi fari sérstaklega að sýsla með það um hvað er fjallað, með hvaða hætti gagna er aflað og annað slíkt.
Það hafa komið upp mál sem beinlínis hafa verið lögreglumál. Ég hef verið spurður um það hvort og með hvaða hætti ég ætlaði að skipta mér af því og hlutast til um það. Það er ekki betra ef gerð er krafa um að Alþingi eða ráðherrar séu að hlutast til um mál sem heyra undir réttarkerfið. Alþingi verður auðvitað að ákveða hvað það gerir. En ég teldi að þá værum við komin inn á nýjar slóðir sem kannski væri varhugavert að feta.