meðferð trúnaðargagna hjá RÚV.
Virðulegur forseti. Það er satt að segja frekar dapurlegt að þingmaður Framsóknarflokksins, sem er flokkur sem hefur hingað til talist til frekar frjálslyndra afla í evrópskum stjórnmálum, skuli ýja að því að það eigi að feta þessa slóð. Við værum þá komin á einhvern allt annan stað varðandi samband stjórnmála og frjálsrar fjölmiðlunar ef við færum að rannsaka þetta með þessum hætti. Ráðherra — jú, hann er yfir RÚV, en það þýðir ekki að hann eigi, megi eða geti vaðið þar inn og haft áhrif á fréttir og fréttaöflun og heimildaöflun. Ég sagði ekki að þingið ætti ekki að gera það. Ég sagði að ég teldi að þingið væri að feta verulega varhugaverða braut ef það gerði það. Ég held að fólk hér inni ætti að hugsa sig verulega um áður en það stígur það skref.