styrkir til einkarekinna fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Já, ástæðan fyrir því að ráðherra hefur ákveðið að framlengja þessa styrki nánast óbreytta um eitt ár er vegna þess að síðustu ríkisstjórn auðnaðist ekki að klára þetta áður en hún hrökklaðist frá. Hér er talað um að ég sé að taka styrki af einhverjum, eins og einhver fjölmiðill eigi rétt á einhverju. Ég er að gera minni háttar breytingar sem felast fyrst og fremst í því að koma í veg fyrir að það myndist þessar svokölluðu fjölmiðlaeyðimerkur hingað og þangað um landið. Við skulum nú muna það að þessi tvö fyrirtæki sem um er rætt fá engu að síður u.þ.b. helminginn af öllu sem verður veitt í þessa styrki. Það er rétt að minna á að í frumvarpi fyrri ríkisstjórnar, á 150. löggjafarþingi, var þakið lækkað úr 25% í 18% og hámarksheildarupphæð var 50 milljónir sem er aðeins helmingur af því sem þessir tveir fjölmiðlar munu fá samkvæmt mínu frumvarpi. Þannig að ég vísa þessu á bug.
Já, ég tel að Ríkisútvarpið hafi afar mikilvægu hlutverki að gegna í fjölmiðlun á Íslandi. Ég tel að það sé ekki sýnt og ég tel reyndar að það sé afar ólíklegt að við það að taka RÚV á einu bretti af auglýsingamarkaði myndi það færa auglýsingatekjurnar sjálfkrafa yfir til hinna fjölmiðlanna. Ég hef hins vegar jafnframt sagt að ég telji að það þurfi að skoða með hvaða hætti við minnkum umsvif RÚV á auglýsingamarkaði og minnkum ásókn þess í auglýsingasölu og hyggst þá gera það sem þeim sem tala hæst á móti þessu frumvarpi, sem koma hérna oftast upp og ræða þetta, hefur bara ekki tekist á síðasta áratug. Það er sífellt verið að koma hér upp og kenna fjögurra mánaða gamalli ríkisstjórn um eitthvað sem fyrri flokkar gátu ekki gert, tókst ekki að gera eða vildu ekki gera og ég held að það sé (Forseti hringir.) almennur stuðningur í ríkisstjórninni, já, við þessa stefnu.