156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

styrkir til einkarekinna fjölmiðla.

[11:06]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Fyrst er nú gott að vita að við hv. þingmaður deilum að einhverju leyti skoðunum um hvað þurfi að gera til að efla hér fjölmiðlun. Eitt er að taka fílinn í stofunni, hitt er að stækka herbergið sem fíllinn er í þannig að hér geti fleiri fjölmiðlar (Gripið fram í.) dafnað vel og það er líka hægt að gera það. Það eru margar aðferðir við þetta. En ég hef ekki alveg komið auga á árangur þeirra aðferða sem flokkur hv. þingmanns hefur beitt á síðustu árum vegna þess að það hefur ekkert gerst nema hlutirnir hafa versnað.

Hvað varðar almennt þegar stjórnmálafólk ræðst gegn fjölmiðlum eða talar gegn fjölmiðlum með óviðeigandi hætti þá bara fordæmi ég það og get ekki með nokkru móti sætt mig við að það sé gert. Það er mitt hlutverk að standa með fjölmiðlum. Ég verð að hafa þá trú að fjölmiðlar sem lúta góðri og skýrri ritstjórn fjalli um mál á hlutlægan hátt. Ég get ekkert um það sagt hvort einstaklingar séu ósammála fréttaflutningi eða annað en ég held að almennt ættum við að tala varlega um fjölmiðla.