156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

lögmæti ákvarðana félags- og húsnæðismálaráðherra.

[11:10]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir þessa fyrirspurn sem er nú svona vítt og breitt um bæinn eins og gengur. Það hefði nú verið ánægjulegt að vera bara í sérstakri umræðu við hv. þingmann um þessa tvíhliða spurningu.

Í fyrsta lagi um skipan mína í stjórn HMS þá skipaði ég í þá stjórn eins og ég taldi að væri í lagi að gera, fékk svo að vita að það gæti brotið í bága við jafnréttislög og ég ætti að skipa konu þannig að það var gert og nú erum við komin með doktor í verkfræði í stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Hvað lýtur að skipan í stjórn Tryggingastofnunar hefur það nú verið viðtekin venja hér að í kjölfar kosninga hafa liðið á bilinu 5–7 mánuðir frá því að ráðherrar taka við sínum ráðuneytum þar til þeir hafa endanlega verið búnir að ganga frá skipan í stjórn þeirrar stofnunar. Það liggur fyrir frumvarp núna þar sem við erum að fara að leggja niður stjórn Tryggingastofnunar en til að friða þessa umræðu, sem var í raun eingöngu gerð til að draga fram neikvæðni og ótrúverðugleika, þá get ég glatt hv. þingmann með því að á þeim tíma, þ.e. á meðan lagaákvæði um stjórn Tryggingastofnunar hafa ekki verið felld niður, situr hún sem fastast í mínu umboði.

Hvað lýtur að vantrauststillögu, eins og komið er hér inn á, frá síðasta löggjafarþingi á þáverandi hæstv. matvælaráðherra út af banni við hvalveiðum þá var nú verið að benda á að þar voru aðstæður ansi mikið ólíkar eins og hv. þingmaður veit. Ég er t.d. ekki hrifin af hvalveiðum. Þetta snýst ekki um það hvort þú ert með eða á móti hvalveiðum heldur aðferðafræðina sem beitt var á þeim tíma, þegar bannið kom daginn áður en flotinn var að leggja úr höfn.