lögmæti ákvarðana félags- og húsnæðismálaráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir síðari fyrirspurn. Það er í rauninni með hreinum ólíkindum að akkúrat þessi hv. þm. Sigríður Á. Andersen, sem einn af fáum ráðherrum fyrrverandi ríkisstjórnar Íslands hrökklaðist úr embætti og þurfti að segja af sér ráðherradómi vegna einstrengingslegra ákvarðanataka þvert á gildandi lög og það þurfti Mannréttindadómstól Evrópu til að hrekja hana úr embætti vegna þess að svo fast sat hún — ég segi ekkert annað en það, hv. þingmaður, að ég horfi í þín augu með von um það að við gerum okkar besta og séum í góðri trú að vinna að hag samfélagsins sem við vorum kjörnar til að gera og ég óska nákvæmlega þess hins sama. Ég mun ganga hér fram af heiðarleika og einlægni í mínum störfum hér eftir sem hingað til, hvort heldur sem væri í stjórnarandstöðu, sem ber pínulítið annan brag í störfum okkar heldur en þegar við sitjum í hæstv. ríkisstjórn.