156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

afstaða félags- og húsnæðismálaráðherra til breytingar á lögum veiðigjald.

[11:18]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Ég þakka svarið. Ég vil nú byrja á að segja að það hefði verið gott ef hæstv. ráðherra hefði eitthvað fylgst með umræðunni. Í fyrsta lagi er það skýrt í frumvarpinu sjálfu að þetta eru skattar. Ég held að allir séu sammála um að vilja eðlilega rentu. Umræðan snýst um hvað er eðlileg renta. Ég ætla bara að leyfa mér að nota aðeins tímann hérna til að benda hæstv. ráðherra á það að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum, eða frumvarpsdrögunum, verður skattheimtan á botnfisksveiðar um 75%. Ef þetta frumvarp hefði orðið að veruleika árið 2024 hefði veiðigjaldið í tilviki makríls verið hærra en afkoman. Við erum að reyna að ræða hvað er eðlileg renta.

Í seinni spurningu ætla ég að snúa mér að öðru og spyrja hæstv. ráðherra hvort hún sé tilbúin til að birta og afla gagna um hverjir nota velferðarkerfið, eins og verið er að gera í Danmörku, til að reyna að koma í veg fyrir misnotkun á kerfinu.