156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

afstaða félags- og húsnæðismálaráðherra til breytingar á lögum veiðigjald.

[11:20]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðari fyrirspurn og er sérstaklega þakklát fyrir niðurlagið á henni vegna þess að hún heyrir beint undir mig, mín störf og mitt ráðuneyti. Já, það er alvarlegt mál þegar er kannski, eins og við vitum — það er grafalvarlegt mál þegar einstaklingar misnota velferðarkerfið okkar. Þannig að í bæði Vinnumálastofnun og innan veggja míns ráðuneytis er verið að hagræða afskaplega mikið hvað lýtur að t.d. Atvinnuleysistryggingasjóði og fleiri kerfum. Þannig að já, það standa vonir til þess að við eigum eftir að ná betur utan um og hafa heildstæðari yfirsýn yfir raunverulega stöðu í velferðarmálunum okkar, velferðarkerfunum okkar, þannig að við getum brugðist við sem best gerist. Hv. þingmaður vísar til Danmerkur og það er nú svolítið annað þar uppi á teningnum. Það eru ekki sömu reiknireglur sem (Forseti hringir.) þeir voru að birta í Danmörku eins og við erum með hér. Það liggur náttúrlega algerlega fyrir og vísar í allt annað en hv. þingmaður er að tala um.