156. löggjafarþing — 43. fundur,  15. maí 2025.

Orð félags- og húsnæðismálaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.

[11:21]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Forseti. Ég vil vekja athygli á því hversu ósmekklegt það er að hæstv. félagsmálaráðherra skuli hér sneiða að þingmanni í óundirbúnum fyrirspurnatíma vitandi að hv. þingmaður getur ekki svarað fyrir sig á sama vettvangi. Ef það er hins vegar undirliggjandi í ræðu og orðum hæstv. ráðherra að hún sé að íhuga stöðu sína, af því að það er vissulega rétt hjá henni að hv. þm. Sigríður Andersen sagði af sér ráðherradómi, eða ef hæstv. félagsmálaráðherra hefur verið að biðja um vantrauststillögu á sig þá get ég alveg ímyndað mér að það verði tekið til góðfúslegrar athugunar.